Samningar hafa ekki tekist ennþá og verkfall hafið á eigin skipum Eimskips

Source: GlobeNewswire
Samningar hafa ekki tekist ennþá og verkfall hafið á eigin skipum Eimskips

Á hádegi í dag, mánudaginn 25. maí, hófst ótímabundið verkfall háseta og bátsmanna í Sjómannafélagi Íslands (SÍ) á eigin skipum Eimskips; Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi.

Verkfallið mun hafa áhrif á siglingaáætlun og þjónustu félagsins. Eimskip hefur unnið markvisst að því undirbúa þessa sviðsmynd til að lágmarka truflanir á þjónustu við viðskiptavini eins og kostur er.

Hafnarstarfsemi og önnur starfsemi félagsins er í eðlilegum farvegi. Í síðustu viku náðist samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins (SA), fyrir hönd Eimskips, og SÍ vegna hafnarverkafólks í Sundahöfn og var boðuðu verkfalli þar aflýst.

Viðræður um laun og kjör háseta og bátsmanna standa enn yfir með milligöngu ríkissáttasemjara. Eimskip þykir miður að samningar hafi ekki náðst áður en til verkfalls kom og vonast til að samningar náist sem fyrst.

Viðskiptavinum verður áfram haldið upplýstum eftir því sem málum vindur fram.

Nánari upplýsingar veitir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 7379, netfang: harpa@eimskip.com.