Company Announcements

Ísfélag hf.: Breyting á skipastól

Source: GlobeNewswire
Ísfélag hf.: Breyting á skipastól

Ísfélag hf. hefur samið um kaup á uppsjávarskipinu Pathway. Seljandi er skoska fyrirtækið Lunar Fishing Company Limited. Pathway var smíðað árið 2017 í Danmörku og er 78 metra langt og 15,5 metra breitt. Kaupin eru liður í endurnýjun á skipaflota félagsins. Áætlað er að skipið verði afhent í maí á næsta ári.

Frekari upplýsingar veitir Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélags hf.