Scope Ratings gefur ríkissjóði Íslands AA- lánshæfiseinkunn með stöðugum horfum

Source: GlobeNewswire
Scope Ratings gefur ríkissjóði Íslands AA- lánshæfiseinkunn með stöðugum horfum

Scope Ratings hefur veitt ríkissjóði Íslands lánshæfiseinkunnina AA- í innlendri og erlendri mynt með stöðugum horfum.

Scope Ratings er evrópskt lánshæfismatsfyrirtæki sem metur lánshæfi Íslands nú í fyrsta sinn. Fyrirtækið hóf að meta lánshæfi ríkja árið 2017 og hefur síðan vaxið og gefið út einkunn fyrir 38 ríki. Scope er eina fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu sem er viðurkennt innan matsramma seðlabanka Evrópu.

Í mati Scope Ratings er bent á að helstu styrkleikar íslenska hagkerfisins séu háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanburði, tiltölulega lágar og lækkandi skuldir hins opinbera, trúverðug ríkisfjármálastefna og sterk skuldbinding stjórnvalda til ábyrgrar ríkisfjármálastjórnar. Þá sé ytri staða þjóðarbúsins sterk, sem stuðli að viðnámsþrótti gagnvart ytri áföllum.

Það sem helst takmarkar lánshæfiseinkunn Íslands er tiltölulega fábreyttur útflutningur, sem gerir hagkerfið útsett fyrir breytingum í erlendri eftirspurn, viðskiptakjörum og gengissveiflum. Þá einkennist íslenskt hagkerfi af meiri sveiflum í helstu hagstærðum, svo sem hagvexti, verðbólgu og innlendri eftirspurn, en almennt gerist meðal sambærilegra ríkja.