Company Announcements

Festi hf. – Kaupsamningur undirritaður við Reiti og uppfærð afkomuspá 2021

Source: GlobeNewswire
Festi hf. – Kaupsamningur undirritaður við Reiti og uppfærð afkomuspá 2021

Festi fasteignir ehf., dótturfélag Festi hf., hefur undirritað í dag kaupsamning um sölu þriggja fasteigna félagsins til Reita verslunareigna ehf. en tilkynnt var um að félagið hefði samþykkt kauptilboð frá þeim þann 30. júní sl. Öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur nú verið aflétt og fer afhending eignanna fram 1. nóvember nk.

Salan er hluti af stefnu félagsins um sölu fasteigna þar sem eigin starfsemi er undir ákveðnu hlutfalli í viðkomandi eign. Söluverð fasteignanna nemur 3.231 millj. kr. og nemur söluhagnaður um 290 millj. kr. 

Vegna þessa er EBITDA spá Festi fyrir árið 2021 hækkuð um 400 millj. kr. og er nú 9.800 -10.200 millj. kr.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Kristófersson, forstjóri, (eggert@festi.is) og Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri, (mki@festi.is)