Company Announcements

Síminn hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2022 verður birt eftir lokun markaðar 26. apríl 2022

Source: GlobeNewswire
Síminn hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2022 verður birt eftir lokun markaðar 26. apríl 2022

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 þann 26. apríl næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl 2022 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: www.siminn.is/fjarfestakynning. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.