Company Announcements

Sjóvá: Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum til stjórnar

Source: GlobeNewswire
Sjóvá: Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum til stjórnar

Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Sjóvár vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 7. mars 2024.

Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til loka mánudagsins 22. janúar 2024. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á vefsvæði félagsins á slóðinni https://www.sjova.is/frambod-til-stjornarsetu/ og skal skila á netfangið tilnefningarnefnd@sjova.is.

Tillaga nefndarinnar að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt samhliða aðalfundarboði sem birt verður skemmst þremur vikum fyrir aðalfund.

Almennur framboðsfrestur til stjórnar er fimm sólarhringum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki, en nefndin ábyrgist ekki að lagt verði mat á framboð sem berast þeim eftir 22. janúar 2024. Nefndin áskilur sér þó rétt til að endurskoða tillögu þá sem birt verður samhliða aðalfundarboði og verður endurskoðuð tillaga þá birt a.m.k. tveimur dögum fyrir aðalfund.