Company Announcements

Leiðrétting: Kaldalón hf.: Útgáfa á víxlum - niðurstaða útboðs

Source: GlobeNewswire
Leiðrétting: Kaldalón hf.: Útgáfa á víxlum - niðurstaða útboðs

Í fyrri tilkynningu félagsins í dag kom fram að seldir voru víxlar að nafnvirði 1.000 milljónir króna á 10,43% vöxtum. Réttir vextir í sölu á víxlum eru 10,45%. Tilkynningin leiðréttist hér með: 

Kaldalón hf. hefur lokið sölu á óveðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki KALD 24 0901. Tilboð bárust fyrir 1.260 milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 10,40%-10,55% p.a. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.000 milljónir kr. á 10,45% vöxtum.

Greiðslu og uppgjörsdagur er föstudagurinn 1. mars 2024. Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og verður fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara.

Landsbankinn hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is