Company Announcements

Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2023 fimmtudaginn 7. mars 2024. Fjárfestakynning verður haldin sama dag.

Source: GlobeNewswire
Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2023 fimmtudaginn 7. mars 2024. Fjárfestakynning verður haldin sama dag.

Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2023 á fimmtudaginn kemur 7. mars 2024.

Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:00 en þá mun Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins kynna uppgjör félagsins og fara yfir ástand og horfur.

Fjárfestakynningin verður eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestir@svn.is.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is/fjarfestar/. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is