Company Announcements

Alvotech heldur uppgjörsfund fyrir árið 2023 í beinu streymi þann 21. mars nk. kl. 12:00 að íslenskum tíma

Source: GlobeNewswire
Alvotech heldur uppgjörsfund fyrir árið 2023 í beinu streymi þann 21. mars nk. kl. 12:00 að íslenskum tíma
  • Fjárfestadagur, sem einnig verður sendur út á vefnum, verður haldinn föstudaginn 22. mars nk.

Alvotech (NASDAQ: ALVO) birtir ársuppgjör fyrir 2023 að kvöldi miðvikudagsins 20. mars nk., eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Þá verður haldinn uppgjörsfundur fyrir fjárfesta, með aðgengi í beinu streymi, fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 12:00 á hádegi að íslenskum tíma.

Streymi af uppgjörsfundinum, sem fer fram á ensku, verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech, https://investors.alvotech.com undir liðnum News and Events – Events and Presentations. Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið, sem aðgengileg verður í 90 daga.  

Föstudaginn 22. mars nk., heldur Alvotech fjárfestadag, sem einnig verður aðgengilegur í vefstreymi. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðissalnum, Hótel Parliament við Austurvöll frá kl. 14:00-16:00. Gestir eru vinsamlegast beðnir um að skrá þátttöku fyrir 15. mars nk. á síðunni https://www.alvotech.is/fjarfestadagur-alvotech-2024. Við skráningu er einnig hægt að biðja um hlekk á vefstreymið.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsla- og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com