Company Announcements

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum

Source: GlobeNewswire
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, OLGERD240926, fyrir 700 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 10% flötum vöxtum, en víxillinn verður skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 27. mars n.k.

Nánari upplýsingar veitir:

Jón Þorsteinn Oddleifsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs í síma 820-6491 eða jon.thorsteinn.oddleifsson@olgerdin.is