Company Announcements

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 14

Source: GlobeNewswire
REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 14

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 14. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 79.775.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
2/4/2413:09100.00080,508.050.0001.700.000
2/4/2414:26100.00080,258.025.0001.800.000
2/4/2414:41100.00080,008.000.0001.900.000
3/4/2413:13100.00079,257.925.0002.000.000
4/4/2410:21100.00078,757.875.0002.100.000
4/4/2412:04100.00078,757.875.0002.200.000
4/4/2414:04100.00078,757.875.0002.300.000
5/4/2411:37100.00080,508.050.0002.400.000
5/4/2414:12100.00080,508.050.0002.500.000
5/4/2414:30100.00080,508.050.0002.600.000
Samtals 1.000.000 79.775.0002.600.000


Reitir hafa nú keypt samtals 2.600.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 46,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 206.375.000 kr. sem samsvarar 41,3% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.550.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 13.050.000 eigin hluti fyrir 1.063.275.000 kr.

Reitir eiga nú samtals 2.600.000 eigin hluti, eða um 0,37% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 708.950.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.