Company Announcements

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 16

Source: GlobeNewswire
REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 16

Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 16. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 742.398 eigin hluti að kaupverði 57.471.420 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
16/4/2410:5210077,507.7503.400.100
16/4/2411:20100.00078,007.800.0003.500.100
16/4/2414:10100.00077,507.750.0003.600.100
17/4/2413:3570.00077,755.442.5003.670.100
17/4/2413:5972.29877,755.621.1703.742.398
17/4/2414:23100.00077,007.700.0003.842.398
18/4/2414:24100.00077,007.700.0003.942.398
18/4/2415:12100.00077,007.700.0004.042.398
19/4/2410:27100.00077,507.750.0004.142.398
Samtals 742.398 57.471.4204.142.398


Reitir hafa nú keypt samtals 4.142.398 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 74,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 326.971.420 kr. sem samsvarar 65,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.550.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 14.592.398 eigin hluti fyrir 1.183.871.420 kr.

Reitir eiga nú samtals 4.142.398 eigin hluti, eða um 0,58% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 707.407.602.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.