Company Announcements

Fly Play hf.: Afkomuspá 2024 felld úr gildi

Source: GlobeNewswire
Fly Play hf.: Afkomuspá 2024 felld úr gildi

Vinna við árshlutareikning og uppfærslu afkomuáætlunar vegna ársins 2024 gefur vísbendingar um að rekstrarhagnaður Play verði ekki í kringum núll eins og áður hafði verið gefið út, heldur neikvæður. Afkoman á þennan mælikvarða stefnir þó í að verða mun betri en á síðasta ári. Erfitt rekstrarumhverfi flugfélaga um þessar mundir gefur PLAY tilefni til að veita ekki frekari leiðsögn um rekstrarþætti félagsins fram á við. Uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung verður birt í lok dags þann 25.júlí. Einar Örn Ólafsson forstjóri Play mun kynna uppgjörið í beinu streymi kl. 16:15 sama dag.