Company Announcements

Síminn hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2024 verður birt eftir lokun markaðar 22. október 2024

Source: GlobeNewswire
Síminn hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2024 verður birt eftir lokun markaðar 22. október 2024

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2024 þann 22. október næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 23. október 2024 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.

Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.