Company Announcements

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Source: GlobeNewswire
Síminn hf. - Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Síminn hf. hefur lokið sölu á nýjum víxlaflokki, SIMINN251015 2. Seldir voru víxlar að nafnverði 600 m.kr. á kjörum sem samsvara 8,20% flötum vöxtum með lokagjalddaga þann 15. október 2025.

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 7. maí 2025.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.


Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is.
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans hf., netfang: oskarh@siminn.is.