Heimar hf.: Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Heima á Grósku
Source: GlobeNewswireVísað er til tilkynningar Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“), dags. 23. apríl 2025, um kaup félagsins á öllu hlutafé Grósku ehf. og Gróðurhússins ehf. Í tilkynningunni kom fram að kaupin væru háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitið hefur nú tilkynnt um að það telji hvorki forsendur til íhlutunar né frekari rannsóknar vegna kaupanna. Fyrirvaranum um samþykki Samkeppniseftirlitsins hefur því verið aflétt. Unnið er að frágangi viðskiptanna og má gera ráð fyrir því að afhending 258 milljón nýrra hluta í Heimum fari fram á næstu vikum.
Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum á síðari stigum eftir því sem tilefni er til og samræmi við lögbundna upplýsingagjöf félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, s. 821 0001
