Company Announcements

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 28. maí 2025

Source: GlobeNewswire
Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 28. maí 2025

Síminn hf. lauk í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN251203.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 560 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,90-8,30%.

Tilboðum að fjárhæð 240 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,04% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 4. júní 2025. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522 4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans hf., netfang: oskarh@siminn.is