Company Announcements

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Source: GlobeNewswire
Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 26. viku 2025 keypti Síminn hf. 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 65.175.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
23.6.202514:191.000.00013,00013.000.00067.342.462
24.6.202509:381.000.00013,20013.200.00068.342.462
25.6.202510:461.000.00013,02513.025.00069.342.462
26.6.202511:011.000.00013,00013.000.00070.342.462
27.6.202510:271.000.00012,95012.950.00071.342.462
  5.000.000 65.175.00071.342.462


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júní 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 66.342.462 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 71.342.462 eða sem nemur 2,88% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 12.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,48% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 160.875.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.