Company Announcements

Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Source: GlobeNewswire
Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 4. viku 2026 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 40.000 eigin hluti fyrir ISK 10.580.000 eins og hér segir:

DagsetningTímiMagnVerðKaupverð
19.01.202614:3735.0002649.240.000
21.01.202612:505.0002681.340.000

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið.

Eimskip hefur nú keypt samtals 2.249.680 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 99,99% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 670.423.000  sem nemur 89,39% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 29. September 2025. Endurkaupin munu að hámarki nema 2.250.000 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei hærri en 750 milljónir króna. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 27. mars 2025, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Eimskip átti 3.935.000 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.975.000 hluti sem nemur 2,40% af heildarhlutafé félagsins.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com