Company Announcements

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6

Source: GlobeNewswire
Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 6

Í 6. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 10.800.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
3.2.202615:28600.0004,522.712.000
4.2.202610:03600.0004,522.712.000
5.2.202609:47600.0004,522.712.000
6.2.202615:28600.0004,442.664.000
Samtals2.400.000 10.800.000 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 99.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 101.400.000 hluti, eða um 2,85% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 477.639.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is