Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Source: GlobeNewswireÍ viku 9 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.400.000 eigin hluti að kaupverði 215.260.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
| 23.2.2026 | 15:16:34 | 2.000.000 | 18,45 | 36.900.000 |
| 24.2.2026 | 13:28:56 | 1.000.000 | 18,7 | 18.700.000 |
| 24.2.2026 | 15:07:28 | 1.700.000 | 18,7 | 31.790.000 |
| 25.2.2026 | 14:37:14 | 1.700.000 | 19,1 | 32.470.000 |
| 25.2.2026 | 15:18:04 | 1.000.000 | 19 | 19.000.000 |
| 26.2.2026 | 09:51:25 | 1.000.000 | 19,1 | 19.100.000 |
| 26.2.2026 | 11:21:26 | 1.000.000 | 19,1 | 19.100.000 |
| 27.2.2026 | 14:32:44 | 2.000.000 | 19,1 | 38.200.000 |
| Samtals | 11.400.000 | 215.260.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 20. febrúar 2026 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26. mars 2025.
Kvika hefur nú keypt samtals 11.400.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,246% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 215.260.000 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 285.767.380 hlutir eða sem nemur 6,171% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 631.548.500 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 45.000.000.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 20. febrúar 2026 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði eða hámarks fjölda hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is