Company Announcements

Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 verður birt 30. apríl – kynningarfundur sama dag kl. 16:15

Source: GlobeNewswire
Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 verður birt 30. apríl – kynningarfundur sama dag kl. 16:15

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs ársins 2026 eftir lokun markaða fimmtudaginn 30. apríl nk. 

Kynningarfundur 30apríl kl. 16:15 

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 30. apríl kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni sjova.is/afkomukynning. Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar. 

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum. 

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is